Í gær fór útskrift FB fram við hátíðlega athöfn í skólanum. Guðrún Hrefna Guðmundsdóttir skólameistari stýrði athöfninni ásamt fag-og sviðstjórum. Af þeim 121 sem útskrifuðust voru 8 með tvö lokapróf. Þá útskrifuðust 66 nemendur með stúdentspróf, 16 húsasmiðir, 18 rafvirkjar, 13 sjúkraliðar og 9 útskrifuðust af snyrtibraut. Útskriftað var eftir brautum og var útskriftinni streymt svo vinir og vandamenn gætu tekið þátt í athöfninni heima. Fluttar voru rafrænar kveðjur frá nemendum og tónlist leikin. Viðurkenningar voru veittar fyrir ágætan námsárangur og sópaði Selma Lind Davíðsdóttir, stúdent af tölvubraut að sér þeim flestum. Hún fékk viðurkenningu fyrir besta árangur á stúdentsprófi með einkunnina 9.48. Þá hlaut Selma Lind einnig viðurkenningu frá Soroptimistaklúbbi Hóla og Fella sem og verðlaun fyrir ágætis árangur í raungreinum, stærðfræði og tölvugreinum. Þá veitti Styrktarsjóður Kristínar Arnalds Selmu Lind viðurkenningu fyrir bestan árangur í íslensku. Þá hlaut Hlynur Gíslason viðrkenningu fyrir bestan árangur á rafvirkjabraut, dönsku og spænsku en Hlynur útskrifaðist bæði af rafvirkjabraut og sem stúdent. Þá veitti Rótaryklúbbur Breiðholts Lindu Björg Björnsdóttur, nýstúdent af félagsfræðabraut viðurkenningu fyrir störf að félagsmálum. Myndir frá athöfninni munu birtast næstu daga bæði á instgramsíðu skólans fbskoli og facebooksíðu skólans sem á flicr á heimasíðu skólans.
Eftirfarandi nemendur hlutu viðurkenningar fyrir bestan árangur á brautum:
Anna Dís Árnadóttir, fata-og textílbraut
Garðar Björgvinsson, myndlistarbraut
Lokaverkefni til stúdentsprófs, Ástrós Helga Rafalesdóttir , opin braut. Ástrós Helga hlaut einnig verðlaun í sálfræði.
Dan Bahadur Gurung, tölvubraut
Regina Guevarra Tomarao, sjúkraliðabraut
María Rún Ellertsdóttir, snyrtibraut
Esther Mee Hwa Herman, húsasmiðabraut og stúdentsbraut að loknu starfsnámi
Hanna Lára Gylfadóttir, húsasmiðabraut
Myndirnar tók Haraldur Guðjónsson ljósmyndari.