Þann 27. febrúar mun NFB halda skólaball á Spot í Kópavogi ásamt nemendafélögum Tækniskólans og FÁ.  Þá verða sæludagar haldnir miðvikudaginn 4. og fimmtudaginn 5. mars. Fjölmargir viðburðir verða í boði. Nánari upplýsingar og skráning á sæludagavefnum okkar www.saeludagar.is. Um kvöldið þann 5. mars mun leiklistarfélag skólans Aristófanes frumsýna leikritið sitt í hátíðarsal Breiðholtsskóla. Leikritið er frumsamið af leikstjórunum í samstarfi við leikhópinn.