Á föstudaginn kemur er fjarkennsludagur í FB. Kennarar kenna þennan dag í gegnum fjarkennslukerfi INNU eða TEAMS og skólinn verður lokaður.  Dagurinn er hugsaður þannig að hann gefi tækifæri til að viðhalda þeirri þekkingu og færni sem ávannst á tímum Covid-faraldursins. Einnig er dagurinn hugsaður sem liður í sjálfbærnistefnu skólans, þ.e. að spara orkunotkun í skólabyggingum og útblástur vegna aksturs til og frá skóla í einn dag.