FB tekur þátt í viðburðinum Mín framtíð 2023 – Íslandsmóti iðn- og verkgreina – sem fer fram í Laugardalshöll dagana 16.-18. mars. Kynningarbás verður á staðnum auk þess sem fulltrúar úr nemendahópin taka þátt í keppninni.

22 faggreinar eru skráðar til leiks í keppni og 10 greinar til viðbótar kynna sig ásamt því sem 30 framhaldsskólar kynna nám og starfsemi sína. Húsið opnar fyrir almenning klukkan 13 á fimmtudag og föstudag en á laugardaginn er fjölskyldudagur, nánari dagskrá má sjá hér.