Auglýsing um sveinspróf
Sveinspróf í eftirtöldum iðngreinum verða haldin í desember og janúar ef næg þátttaka fæst:
Í byggingagreinum í desember – janúar. Umsóknarfrestur er til 1. nóvember.
Í snyrtifræði í janúar. Umsóknarfrestur er til 1. desember.
Með umsókn skal leggja fram afrit af námssamningi, lífeyrissjóðsyfirlit og burtfararskírteini með einkunnum eða staðfestingu skóla á því að nemi muni útskrifast í desember 2014.
Kostnaður próftaka s.s. efniskostnaður er mismunandi eftir iðngreinum.
Umsóknareyðublöð má nálgast á heimasíðu okkar, www.idan.is og á skrifstofunni.
IÐAN – fræðslusetur,
Vatnagörðum 20, 104 Reykjavík,
sími: 590 6400, netfang: idan@idan.is