Innan hefur verið opnuð þannig að nemendur geti valið fyrir haustönn 2015.
Valið stendur til sunnudagsins 22. mars.
Allar leiðbeiningar um valið eru á heimasíðu skólans undir þessari slóð: https://www.fb.is/namid/val-fyrir-naestu-onn/
Umsjónarkennarar aðstoða umsjónarnemendur sína. Áfangastjóri og námsráðgjafar aðstoða alla daga, vikuna 16. – 20. mars, á milli kl. 10-12 á bókasafni skólans. Einnig er hægt að senda tölvupóst á bhj@vu2016.carl.1984.is eða hringja í síma 570-5608 (Berglind).
Það er nauðsynlegt að skoða öll skjölin sem eru á fyrrnefndri slóð: https://www.fb.is/namid/val-fyrir-naestu-onn/. Þar er t.d. hægt að sjá á hvaða önnum áfangarnir eru kenndir og hvaða íþróttaáfangar eru í boði hverju sinni.
Gott er að hafa eftirfarandi við höndina þegar gengið er frá valinu:
– Útprentun á námsferli úr Innunni: www.inna.is.
– Prenta út valáætlun og fylla hana út.
– Prenta út brautalýsingar: Allar brautir eru á heimasíðu skólans. https://www.fb.is/namid/namsbrautir/ og hægt að prenta út. En það er líka hægt að fá blaðið í biðstofu námsráðgjafa eða á skrifstofu skólans.
– Annaskipting áfanga á brautum, þetta er undir val fyrir næstu önn: https://www.fb.is/namid/val-fyrir-naestu-onn/.
– Áfangalýsingar Eru á heimasíðu skólans.
Nauðsynlegt er að velja fyrir 22. mars til að eiga skólavist vísa á næstu önn!