Fjögur lið úr FB taka þátt í Forritunarkeppni Framhaldsskólanna sem haldin verður dagana 18. – 19. mars 2016 í Háskólanum í Reykjavík. FB hefur ekki haft svona mörg lið áður í keppninni og er það Hjörvar Ingi Haraldsson tölvukennari sem á veg og vanda að undirbúningi nemenda. Liðin hafa undirbúið sig vel undanfarið með æfingum og ýmsum verkefnum.
Hægt verður að fylgjast með hvernig liðunum gengur í gegnum facebooksíðu skólans.