Mjög mikil gróska hefur verið á önninni í skólanum í tengslum við heimsóknir og námsdvalir frá Evrópu.
Eru þessar heimsóknir í tengslum við fjölmörg samstarfsverkefni skólans í gegnum Erasmus+ og ýmsa aðra sjóði.
Þessar heimsóknir sem og námsferðir okkar nemenda og kennara til Evrópu auka víðsýni og fjölbreytileikann.
Fata- og textílkennarar frá Eistlandi dvöldu hjá okkur og heimsóttu ýmsa hönnuði.
Belgískir fata- og textílnemar dvöldu hjá okkur í þrjár vikur.
Norrænar frumkvöðlabúðir voru hjá okkur og tóku um 40 manns þátt í þeim.
Eistneskar stúlkur í húsasmíði dvöldu hjá okkur í fimm vikur.
Kennari og sjúkraliðanemi frá Spáni komu til okkar. Neminn var í þrjár vikur í starfsþjálfun.
Tveir rafvirkjanemar frá Eistlandi voru hjá okkur í 5 vikna starfsþjálfun á vegum Erasmus+.
Danskir raf- og húsasmiðanemar komu til okkar til að vera í starfsþjálfun.
Kennarar og stjórnendur í sjúkraliðanámi frá Tékklandi komu til okkar og heimsóttu ýmsar stofnanir.
![M.a. var farið upp á Akranes í fylgd Sigrúnar Gísladóttur og Berglindar Höllu Jónsdóttur og vitinn heimsóttur.](https://www.fb.is/wp-content/uploads/2013/04/Tekksjukkennogstjornendur-300x168.jpg)
M.a. var farið upp á Akranes í fylgd Sigrúnar Gísladóttur og Berglindar Höllu Jónsdóttur og vitinn heimsóttur.
30. apríl fengum við svo norska kennara frá Bergen í heimsókn.