Sjúkrapróf/aukapróf á morgun
Sjúkrapróf/aukapróf verða á morgun, fimmtudaginn 12. desember.
Sjúkrapróf/aukapróf verða á morgun, fimmtudaginn 12. desember.
Í ljósi veðurspár og viðvarana, gulra og appelsínugulra, hefur verið ákveðið að loka skólanum eftir kl. 15 í dag, þriðjudag. Þetta þýðir að prófin kl. 14:15 í dag frestast fram til kl. 14:15 á morgun, miðvikudag. Allt sem gera átti í kvöldskólanum í kvöld gerist á miðvikudagskvöld. Við verðum að fylgjast með veðurspánni til að [...]
Opnunartími skrifstofu skólans um jól og áramót verður sem hér segir; föstudagur 20. desember opið til kl. 12 vegna útskriftar mánudagur 23. desember lokað föstudagur 27. desember kl. 10-13 mánudagur 30. desember kl. 10-13 fimmtudagur 2. janúar kl. 10-15 föstudagur 3. janúar kl. 8-14
Útskrift verður í Silfurbergi Hörpu 20. desember kl. 14-15:45. Æfing fyrir útskriftarnema verður 19. desember kl. 18-19 í Silfurbergi. Við hvetjum útskriftarnema til að bjóða vinum og fjölskyldu að vera viðstödd þennan hátíðlega viðburð.
Alþjóðlegur dagur barna: Réttlátari heimur fyrir öll börn. Í dag þann 20. nóvember er alþjóðlegur dagur barna en fyrir 30 árum eða þann 20. nóvember 1989 var Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna samþykktur á Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna en hann er grunnurinn að öllu sem UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna gerir. Sem UNESCO skóli vill FB vekja athygli á [...]
Því miður er staðan sú, að við getum ekki rekið sumarskóla FB lengur. Við höfum rekið sumarskólann með nokkrum halla undanfarin ár en í ljósi reynslu síðustu tveggja ára er alveg ljóst að ekki er hægt að gera það lengur.
Fimmtudaginn 14. nóvember kl. 20:00 verður fyrirlestur í Sunnusal á vegum foreldrafélags FB. Allir foreldrar eru hjartanlega velkomnir og verður boðið upp á léttar veitingar frá kl. 19:30. Það er Pálmar Ragnarsson fyrirlesari og körfuboltaþjálfari sem kemur í heimsókn til okkar og spjallar við foreldra. Pálmar hefur slegið í gegn með fyrirlestrum um jákvæð samskipti. [...]
Sameiginlegt umsóknartímabil framhaldsskóla sem bjóða upp á innritun fyrir nám á vorönn 2020 verður dagana 1.-30. nóvember. Sjá nánar hér.
Skólinn verður lokaður fimmtudaginn 24., föstudaginn 25. og mánudaginn 28. október 2019 vegna haustfrís.
Á morgun miðvikudaginn 9. október verður Fræðsludagurinn. Fjölmargt spennandi er í boði og kennarar hafa kappkostað við að bjóða nemendum upp á áhugaverðar ferðir, fyrirlestra, námsstuðning og íþróttaiðkun. Sendur hefur verið út póstur til allra nemenda þar sem þeir eru hvattir til að skrá sig og taka þátt.