Valið
Aðstoð við valið verður á bókasafninu alla vikuna frá kl. 10-12, nema á miðvikudaginn. Hvetjum nemendur til að nýta sér aðstoðina. Berglind Halla Jónsdóttir áfangastjóri verður líka til taks á skrifstofunni eftir hádegi.
Aðstoð við valið verður á bókasafninu alla vikuna frá kl. 10-12, nema á miðvikudaginn. Hvetjum nemendur til að nýta sér aðstoðina. Berglind Halla Jónsdóttir áfangastjóri verður líka til taks á skrifstofunni eftir hádegi.
Nemendur og kennarar frá Belgíu og Noregi fóru Gullna hringinn í dag ásamt íslenskum nemendum FB, gestgjöfum sínum. Leiðsögumaður hópsins var Stefán Andrésson aðstoðarskólameistari og leiðsögumaður. Hópurinn tekur þátt í Erasmus+ samstarfsverkefninu Crossroads with the future. Hér má sjá mynd af hópnum í ferðinni.
Ráðstefna um rannsóknir og nýbreytni í framhaldsskólum var haldin í FB í dag, föstudaginn 20. september. Menntamálaráðherrra Lilja D. Alfreðsdóttir flutti setningarávarp. Þá flutti Berglind Rós Magnúsdóttir dósent við Menntavísindasvið Háskóla Íslands lykilerindið „ Allir í fjölskyldunni hafa farið í þennan skóla nema ég“: Skólaval, sjálfsmyndarsköpun og áskoranir nemenda í framhaldsskólum í borginni og á [...]
Fávitar er heiti á fyrirlestri sem haldinn var í matsal nemenda á forvarnardeginum. Sólborg Guðbrandsdóttir flutti fyrirlesturinn sem fjallaði um stafrænt og annars konar kynferðislegt ofbeldi. Það var nemendafélag skólans NFB sem stóð fyrir viðburðinum sem heppnaðist vel í alla staði.
FB og Hjólakraftur hafa gert með sér samkomulag um valáfanga sem býðst nemendum FB á haustönn 2019. Hjólað verður á ákveðnum tímum á miðvikudögum og geta nemendur fengið lánað hjól og hjálm. Það er Þorvaldur Daníelsson framkvæmdastjóri Hjólakrafts sem stýrir hópnum. Á myndinni má sjá hópinn sem lagði af stað í fyrstu hjólaferðina í dag.
Nýnemaballið verður haldið þann 5. september í Víkingsheimilinu, Traðarlandi 1. NFB nemendafélag FB heldur ballið í samvinnu við nokkra aðra framhaldsskóla. Verðið er 4.000 krónur. Húsið opnar kl. 21:00 og lokar kl. 22:00. Ballinu lýkur kl. 01:00. FB býður upp á fría rútu upp í FB eftir ballið og þeir sem mæta á ballið fá [...]
Ný stjórn NFB, nemendafélags skólans hefur tekið við störfum. Formaður er Sindri Steinn Þórisson, varaformaður er Guðbjörg Þormar og markaðsstjóri er Eydís Emma Jónsdóttir. Við óskum þeim öllum góðs gengis í störfum sínum næsta skólaár. Formaður nördanefndar: Hjörtur Hlíðdal Þorvaldsson Formaður leiklistarnefndar: Þóra Rannveig Emmudóttir Formaður videonefndar: Ásgeir Þorri Orrason Formaður íþróttanefndar: Axel Örn Arnarson [...]
Nýnemakvöld FB verður í kvöld, miðvikudaginn 28. ágúst kl. 20:00 í matsal skólans í boði NFB nemendafélags skólans. Þar verður boðið upp á pizzur og nýnemar geta boðið sig fram í nefndir. Hvetjum alla nýnema til að mæta.
Kynning fyrir foreldra og forráðamenn nýnema verður miðvikudaginn 28. september kl. 17:30-19:00 í Sunnusal. Dagskráin hefst á ávarpi skólameistara, þá kynnir áfangastjóri Innu, upplýsingakerfi fyrir framhaldsskóla. Þá munu fulltrúar nemendafélagsins kynna félagsstarfið. Að lokinni kynningu verður boðið upp á kaffiveitingar og óformlegt spjall. Á myndinni sem fylgir fréttinni má sjá nemendur bregða sér í siglingu [...]
Opnunartími Bóksölu NFB er frá 19.08-30.08 frá kl. 8:30-15:00 alla daga.