Skrifstofan lokar kl. 12 föstudaginn 25. maí
Skrifstofan lokar kl. 12 föstudaginn 25. maí vegna útskriftar og skólaslita í Silfurbergi í Hörpu. Skrifstofan opnar aftur kl. 8:00 mánudaginn 28. maí. Til hamingju með daginn útskriftarnemar!
Skrifstofan lokar kl. 12 föstudaginn 25. maí vegna útskriftar og skólaslita í Silfurbergi í Hörpu. Skrifstofan opnar aftur kl. 8:00 mánudaginn 28. maí. Til hamingju með daginn útskriftarnemar!
Útskrift FB verður í Silfurbergi Hörpu föstudaginn 25. maí kl. 14:00-15:45. Nemendur eru beðnir um að vera mættir kl. 13:00 vegna myndatöku. Lokaæfing er fimmtudaginn 24. maí kl. 18:00-19:00 í Silfurbergi. Mikilvægt að allir mæti á lokaæfinguna.
Lokasýning myndlistarnema FB verður opnuð í Læknaminjasafninu á Seltjarnarnesi laugardaginn 5. maí kl. 13-16. Einnig verður opið sunnudaginn 6. maí frá kl. 13-17. Allir velkomnir og léttar veitingar í boði við opnunina.
Tískusýning útskriftarnema fata- og textílbrautar verður laugardaginn 5. maí í Gallerí Gubb á annarri hæð nýbyggingar skólans. Húsið opnar kl. 17:30 og sýningin hefst kl. 18:00. Snyrtibraut FB sér um förðun sýningarfólks. Allir hjartanlega velkomnir.
Samningur um áframhaldandi rekstur Fablab Reykjavíkur var undirritaður í Ráðhúsi Reykjavíkur í gær. Það voru þau Guðrún Hrefna Guðmundsdóttir skólameistari FB, Dagur B. Eggertsson borgarstjóri fyrir hönd Reykjavíkurborgar og Þorsteinn Ingi Sigfússon frá Nýsköpunarmiðstöð sem undirrituðu samninginn sem tryggir reksturinn til ársins 2020.
Í dag opnuðu þau Hörður Frans Pétursson, Karín Sól og Sara Sigurðardóttir nemendur á myndlistarbraut FB nýtt gallerí í skólanum Gallerí Gubb. Nafnið vísar til þess að allt sé leyfilegt og ekki er nauðsynlegt að verkin séu falleg eða fullkomin. Allir nemendur og kennarar skólans get sótt um að sýna verk sín í gallerínu en [...]
Í dag var Plokk-dagur FB settur í gang, en það voru útskriftarnemenendur sem höfðu forystu um að hreinsa rusl af skólalóðinni og í nágrenni okkar, til að halda umhverfinu hreinu. Í lok tiltektar grilluðu nemendur pylsur í gryfjunni framan við matsalinn og tónlist ómaði í hátölurum. Við þökkum nemendum frumkvæðið og hvetjum þau áfram til allra [...]
Bjóðum nýja stjórn NFB velkomna til starfa og óskum þeim góðs gengis í framtíðinni. Stjórn nemendafélagsins skipa þau Sóley Adda Egilsdóttir forseti, Tanja Sigmundsdottir varaforseti, Jana Rún Hermannsdóttir skemmtanastjóri, Mikael Stefánsson markaðsstjóri og Árni Snær Jónsson meðstjórnandi.
Hin árlega vorhátíð NFB verður síðasta vetrardag miðvikudaginn 18. apríl frá kl. 12 til 13:30. Skólahljómsveitin leikur og matarvagnar verða á staðnum, stuð og stemmning! Fimmtudaginn 19. apríl er sumardagurinn fyrsti og þá er frí í skólanum. Föstudaginn 20. apríl er vorfrí. Skólastarf hefst að nýju mánudaginn 23. apríl samkvæmt stundaskrá. Skrifstofan verður opnuð kl. [...]
Skólinn verður lokaður frá 26. mars - 3. apríl. Skólinn verður opnaður aftur þann 4. apríl kl. 8:00. Kennsla hefst samkvæmt stundakrá miðvikudaginn 4. apríl.