Heimsókn stjórnmálaflokka og skuggakosningar
Skuggakosningar verða í skólanum fimmtudaginn 12. október. Þá fá nemendur tækifæri til að kjósa á milli þeirra flokka sem eru í framboði til Alþingiskosninga 2017. Skuggakosningar eru skipulagðar af Landsambandi æskulýðsfélaga og Sambandi íslenskra framhaldsskólanema með það að meginmarkmiði að efla lýðræðisvitund ungs fólks og hvetja þau til að nýta kosningarétt sinn. Það er von [...]