Opnunartími skrifstofu sumar 2024
Frá 10. júní til og með 21. júní er skrifstofan opin frá kl. 8-13. Skólinn er lokaður frá og með 24. júní - 6. ágúst og opnar aftur miðvikudaginn 7. ágúst kl. 10.
Frá 10. júní til og með 21. júní er skrifstofan opin frá kl. 8-13. Skólinn er lokaður frá og með 24. júní - 6. ágúst og opnar aftur miðvikudaginn 7. ágúst kl. 10.
Útskriftarhátíð FB verður mánudaginn 27. maí n.k. í Silfurbergi, Hörpu. Athöfnin hefst kl. 14:00 og lýkur upp úr kl. 15:30. Salurinn opnar fyrir gesti kl. 13:30. Við hvetjum útskriftarnema til að bjóða sem flestum vinum og vandamönnum á útskriftina. Athugið að skrifstofa skólans lokar klukkan 12 á hádegi þennan dag.
Einkunnir verða birtar nemendum í INNU í síðasta lagi kl. 11 miðvikudaginn 22. maí. Kennarar svara fyrirspurnum nemenda vegna prófa og verkefna í dag- og kvöldskóla miðvikudaginn 22. maí kl. 12-13.
Nemendur íþróttabrautar FB fóru á dögunum í náms- og kynnisferð til Lissabon og Porto með styrk frá Erasmus+. Nemendur heimsóttu íþróttaskóla, fóru á brimbrettanámskeið, strandblak, golf, hjólatúr og fleira. Með í för voru íþróttakennararnir Ágúst, Jóhann og Kristín Anna. Ferðin var frábær og hópurinn til fyrirmyndar!
Útskriftarsýning myndlistarbrautar Fjölbrautarskólans í Breiðholti opnaði í Gerðubergi laugardaginn 4. maí og mun standa yfir til mánudagsins 13. maí. Aðgangur er ókeypis og er sýningin opin á opnunartíma Gerðubergs. VIð hvetjum ykkur öll til að láta ekki þessa glæsilegu sýningu framhjá ykkur fara! Sjá nánar á vef Gerðubergs.
Hin 18 ára Eva Sóllilja Einarsdóttir, nemandi okkar á opinni braut, fer á morgun til Litháen og keppir á Baltic Olympiad in Informatics / Eystrasalts Ólympíuleikunum í forritun. Það eru 6 nemendur frá Íslandi sem voru valin til keppninnar og 10 lönd sem taka þátt. Við óskum Evu Sóllilju góðs gengis í keppninni!
Mánudaginn 29. apríl og þriðjudaginn 30. apríl eru námsmatsdagar. Miðvikudaginn 1. maí er verkalýðsdagurinn og þá er skólinn lokaður.
Undanfarnar vikur hafa nemendur og kennarar verið á ferðalagi annars vegar í Póllandi og hins vegar Frakklandi. Andri Þorvarðarson sögukennari fór með nemendur úr valáfanga um sögu Póllands til Kraká og Auschwitz. Þá fór hópur nemenda af snyrtibraut ásamt kennurum Nínu Björgu Sigurðardóttur og Bergljótu Stefánsdóttur til Parísar þar sem þær heimsóttu skóla og fyrirtæki [...]
Páskafrí er í skólanum frá 25. mars til og með 1. apríl. Þriðjudaginn 2. apríl er námsmatsdagur. Hefðbundin kennsla hefst aftur miðvikudaginn 3. apríl.
Nemendur FB hafa staðið sig vel undanfarið með frábærri frammistöðu á ýmsum sviðum og verið sjálfum sér og skólanum til mikils sóma. Við erum virkilega stolt af því og óskum þeim öllum til hamingju með árangurinn. Sjá nánar á meðfylgjandi myndum.