Stöðupróf í dönsku og spænsku
Stöðupróf í spænsku og dönsku verða haldin í MS þriðjudaginn 26. september kl. 12:00. Nánari upplýsingar má sjá hér.
Stöðupróf í spænsku og dönsku verða haldin í MS þriðjudaginn 26. september kl. 12:00. Nánari upplýsingar má sjá hér.
Þann 1. september opnar fyrir umsóknir jöfnunarstyrks fyrir námsárið 2023-2024 og eru nemendur hvattir til að sækja um strax fyrir báðar annir námsársins. Umsóknarfrestur haustannar er til og með 15. október n.k. og vorannar til og með 15. febrúar n.k. Sótt er um á MITT LÁN og ISLAND.is með rafrænum skilríkjum. Fyrir frekari upplýsingar getur [...]
Nýnemaferð FB verður farin 31. ágúst. Það er mæting við inngang við Austurberg (hjá skrifstofu) kl. 9:00. Munið að klæða ykkur eftir veðri þar sem við verðum mikið úti. Boðið verður upp á pylsur í hádeginu og hamborgara þegar komið er aftur í FB, en mælt er með að hafa með sér millimál og brúsa og/eða [...]
Miðvikudaginn 23. ágúst kl 17:30-19:00 verður kynningarfundur fyrir foreldra nýnema. Fundurinn verður í matsal nemenda, inngangur gegnt Breiðholtslaug. Dagskrá: -Ávarp skólameistara. -Áfangastjóri kynnir Innu stuttlega. -Félagsmálafulltrúi segir frá félagsstarfi nemenda. -Kosning fulltrúa í foreldrafélag FB. Að lokinni dagskrá verður kaffi og meðlæti og óformlegt spjall. Á staðnum verða fagstjórar námsbrauta og einnig náms- og starfsráðgjafar. [...]
Töflubreytingar fara fram í FB þriðjudaginn 15. ágúst frá 8:30-16:00 í stofu 204. Kennsla hefst í dagskóla samkvæmt stundaskrá föstudaginn 18. ágúst. Hægt verður að sækja stundatöflur í upplýsingakerfi skólans eftir hádegi föstudaginn 11. ágúst, sjá www.inna.is. Nýnemadagur verður fimmtudaginn 17. ágúst í matsal skólans kl. 15-17. Nýnemakvöld verður svo 23. ágúst og nýnemaferð 31. [...]
Skrifstofa skólans er lokuð frá og með mánudeginum 26. júní og opnar aftur þriðjudaginn 8. ágúst klukkan 10:00.
Allar myndirnar frá útskrift FB þann 27. maí eru nú komnar hingað á myndasíðu FB.
Skólinn verður lokaður 31. maí, 1. júní og 2. júní. Skólinn og skrifstofa opna aftur mánudaginn 5. júní.
Þann 27. maí, voru 163 nemendur útskrifaðir frá FB, þar af 20 með tvö próf. 69 útskrifuðust af bóknámsbrautum, 38 af húsasmíðabraut, 41 af rafvirkjabraut, 14 af sjúkraliðabraut, 9 af snyrtifræðibraut og 12 af starfsbraut. Athöfnin var haldin í Silfurbergi Hörpu við húsfylli og mikinn hátíðleik. Guðrún Hrefna Guðmundsdóttir skólameistari stýrði athöfninni og Víðir Stefánsson [...]
Útskrift FB verður laugardaginn 27. maí í Silfurbergi í Hörpu klukkan 14:00, salurinn opnar klukkan 13:30. Æfing fyrir útskriftina fer fram föstudaginn 26. maí klukkan 20:00 en útskriftarnemar hafa fengið tölvupóst með nánari upplýsingum um æfinguna og fyrirkomulag útskriftarinnar. Sjáumst í Hörpu!