Prófsýning og námsmatsviðtöl
Mánudaginn 22. maí kl. 12:00-13:00 gefst dagskólanemendum og forráðamönnum tækifæri til að koma í skólann og fara yfir prófúrlausnir og námsmat vorannar með kennara. Kvöldskólanemendur koma sama dag kl. 18:00-19:00. Kennarar verða til viðtals í stofum, listar yfir hvar kennarar eru til viðtals hanga í anddyrum skólans. Verið velkomin!