Nú er heilsuvika í fullum gangi í skólanum. Í upphafi heilsuviku var nemendum boðið upp á ávexti í Skuggaheimum. Útskriftarnemar á snyrtibraut gefa góð ráð varðandi húðumhirðu á pallinum við matsal nemenda í hádeginu alla vikuna. Þá má nefna nýja reiti fyrir París á göngum skólans. Hápunktur heilsuvikunnar verður miðvikudaginn 14. nóvember kl. 12:10 en þá mætir Dans Brynju Péturs í matsalinn og við hvetjum alla til að taka þátt.  Það er stýrihópur FB um heilsueflandi framhaldsskóla sem skipuleggur heilsuvikuna.