Innritun í kvöldskóla FB fyrir vorönn 2024 opnar 21. nóvember kl. 9:00 en kennsla hefst 4. janúar.

Í kvöldskólanum er boðið upp á nám á húsasmiðabraut, rafvirkjabraut og sjúkraliðabraut. Einnig eru í boði valdir bóklegir áfangar sem nýtast bæði á verk- og bóknámsbrautum.

Námsráðgjafar aðstoða við innritun bæði í síma og í gegnum tölvupóst, Elísabet Vala, evg@fb.is, 570 5603, Fríða Kristjánsdóttir, frk@fb.is, 570 5617 og Sesselja, sep@fb.is , 570 5635.