Þann 1. september opnar fyrir umsóknir jöfnunarstyrks fyrir námsárið 2023-2024 og eru nemendur hvattir til að sækja um strax fyrir báðar annir námsársins. Umsóknarfrestur haustannar er til og með 15. október n.k. og vorannar til og með 15. febrúar n.k. Sótt er um á MITT LÁN og ISLAND.is með rafrænum skilríkjum. Fyrir frekari upplýsingar getur þú sent fyrirspurn á menntasjodur@menntasjodur.is eða skoðað vef Menntasjóðs námsmanna.