Á ári hverju er efnt til samkeppni meðal nemenda skólans um mynd í jólakort. Emma Noviczski, nýnemi á myndlistarbraut, sigraði keppnina og verður mynd hennar á kortinu í ár. Samkeppnin var óvenju hörð, 23 tillögur bárust og margar þeirra voru mjög góðar. Dómnefnd skipuðu Harpa Dögg Kjartansdóttir myndlistarkennari, Sigríður Ólafsdóttir fagstjóri listnámsbrauta og Guðrún Hrefna Guðmundsdóttir skólameistari.