Kynningarfundur fyrir foreldra/forráðamenn nýnema verður þriðjudaginn 29. ágúst kl. 17:30 -19:00. Fundurinn hefst í Sunnusal FB. Gengið er inn við Austurberg 3. hæð. Á kynningarfundinum munum við kynna skólann og sýna hvernig hægt er að nálgast upplýsingar um skólastarfið og gengi nemenda í skólanum. Þá verður stuttur aðalfundur foreldarfélagsins og kaffiveitingar í lok fundar í miðrými á annarri hæð. Til viðtals verða umsjónarkennarar, áfangastjóri, sviðsstjórar og fagstjórar. Auk þess verður bókasafnið og námsverið opið og eru gestir hvattir til að líta þar við.