Miðvikudaginn 23. ágúst kl 17:30-19:00 verður kynningarfundur fyrir foreldra nýnema. Fundurinn verður í matsal nemenda, inngangur gegnt Breiðholtslaug.

Dagskrá:

-Ávarp skólameistara.
-Áfangastjóri kynnir Innu stuttlega.
-Félagsmálafulltrúi segir frá félagsstarfi nemenda.
-Kosning fulltrúa í foreldrafélag FB.

Að lokinni dagskrá verður kaffi og meðlæti og óformlegt spjall. Á staðnum verða fagstjórar námsbrauta og einnig náms- og starfsráðgjafar.

Klukkan 19:30 hefst svo nýnemakvöld í matsalnum þar sem nemendafélag FB býður upp á pizzu og skemmtun, við hvetjum alla nýnema til að mæta!

Við minnum svo á nýnemaferðina sem verður farin 31. ágúst.