Við fengum góða gesti í matsal nemenda í dag þegar samfélagslöggurnar kíktu í heimsókn. Samfélagslöggan sinnir svokallaðri samfélagslöggæslu sem er ætlað að færa lögregluna nær samfélaginu og efla tengsl við almenning, ekki síst unga fólkið okkar.

Þeir tveir lögregluþjónar sem heimsóttu okkur sinna samfélagslöggæslu fyrir íbúa Breiðholts og Kópavogs samhliða almennri löggæslu og halda úti Instagramsíðunni samfelagsloggur. Nemendur FB tóku gestunum vel og gátu spurt þau um ýmislegt varðandi störf lögreglunnar og annað sem brann á þeim. Hver veit nema við fáum samfélagslöggurnar í heimsókn aftur áður en langt um líður!