Nú hefur verið opnað fyrir skráningu á Sæludaginn sem verður 22. mars og verður skráningin opin út fimmtudag. Þið notið kennitöluna til að skrá ykkur inn á saeludagar.is
Sæludagurinn er uppbrot á hefðbundinni kennslu og verður boðið upp á allskonar viðburði eins og paintball, axarkast, Fifa, bíómynd í Sunnusal, perl og margt fleira. Athugið að mikilvægar upplýsingar um viðburðinn geta verið í lýsingunni, sérstaklega ef hann er utan skóla.