Söngkeppni FB fór fram 1. febrúar þar sem fimm nemendur kepptu um að verða fulltrúi skólans í söngkeppni framhaldsskólanna. Kynnir kvöldsins var Júlíus Örn frá nemendafélaginu og dómarar voru Anton kokkur og Einar og Iveta enskukennarar. Sigurvegari kvöldsins var Sigurborg António Smáradóttir sem er á fyrsta ári á félagsvísindabraut og söng hún lagið As the Worlds Caves In sem Matt Maltese flutti upphaflega. Söngkeppni framhaldsskólanna fer svo fram 1. apríl n.k. þar sem Sigurborg verður fulltrúi FB og við óskum henni góðs gengis!