Útskriftarsýning myndlistarbrautar Fjölbrautaskólans í Breiðholti opnar í Gerðubergi í Breiðholti, laugardaginn 6. maí kl. 14:00, þar sem afrakstur lokaáfanga á myndlistarbraut er til sýnis. Nemendur hafa unnið hörðum höndum að lokaverkefni sem er sjálfstætt verk þar sem nemendur ráða í hvaða miðli þau vinna.

Sýningin er fjölbreytt og metnaðarfull og hana prýða málverk, skúlptúrar, innsetningar, myndasögur og fleira.
Sýningin er opin 6. til 16. maí á opnunartíma Gerðubergs.

Sýnendur:
Albert Flóventsson
Bernharð Máni Snædal
Emma Rún Baldvinsdóttir
Erik Vikar Diez Róbertsson
Hanna Lára Vilhjálmsdóttir
Harpa Rósey Qingqin Pálmadóttir
Ingibjörg Ramos Hilmarsdóttir
Jóhann Garðar Guðmundsson
Katla Lind Þórhallsdóttir
Margrét Ylfa Arnórsdóttir
Svanhvít Berg Victorsdóttir
Sylvía Lorange
Torfi Sveinn Ásgeirsson
Þórdís María Stefánsdóttir