Nám á íþróttabraut veitir nemendum góða, almenna undirstöðuþekkingu í bóklegum- og verklegum greinum. Brautin býr nemendur undir háskólanám eins og íþróttafræði, sjúkraþjálfun, iðjuþjálfun, þroskaþjálfun sem og allt heilsueflandi nám. Námið veitir einnig góðan undirbúning undir frekara nám í félags- og menntavísindum og uppeldisgreinum. Einnig er námið góður undirbúningur fyrir þjálfun, vinnu með börnum og unglingum sem og einkaþjálfun. Námið er 200 framhaldsskólaeiningar og því lýkur með stúdentsprófi.
Nemendur skulu hafa lokið grunnskólaprófi eða ígildi þess. Til að hefja nám á öðru hæfniþrepi í dönsku, ensku, íslensku eða stærðfræði þarf nemandi að hafa náð hæfnieinkunn B við lok grunnskóla eða að hafa lokið fyrsta þreps áfanga í þessum greinum. Nánar er fjallað um inntöku og inntökuskilyrði í skólanámskrá skólans.
Einingafjöldi: 200
Námsgrein | Þrep 1 | Þrep 2 | Þrep 3 | ||||||||
Danska | DANS | 2AA05 | 0 | 5 | 0 | ||||||
Eðlisfræði | EÐLI | 2EU03 | 0 | 3 | 0 | ||||||
Efnafræði | EFNA | 2GR03 | 0 | 3 | 0 | ||||||
Enska | ENSK | 2AF05 | 2RF05 | 2RS05 | 3AL05 | 0 | 15 | 5 | |||
Félagsfræði | FÉLA | 2KR05 | 0 | 5 | 0 | ||||||
Félagsvísindi | FÉLV | 1SF06 | 6 | 0 | 0 | ||||||
Íslenska | ÍSLE | 2II05 | 2KK05 | 3NN05 | 3VV05 | 0 | 10 | 10 | |||
Íþróttafræði | ÍÞRF | 2ÞB05 | 2IS03 | 2SA03 | 3LF05 | 3VK05 | 3IF05 | 0 | 11 | 15 | |
Íþróttastarfsþjálfun | ÍÞST | 3ÞB03 | 0 | 0 | 3 | ||||||
Íþróttagrein | ÍÞRG | 2BL02 | 0 | 2 | 0 | ||||||
Íþróttir | IÞRÓ | 1AS02/AD02 | 1GH02 | 4 | 0 | 0 | |||||
Jarðfræði | JARÐ | 1GJ03 | 3 | 0 | 0 | ||||||
Líffræði | LÍFF | 1GL03 | 3 | 0 | 0 | ||||||
Næringarfræði | NÆRI | 1NN05 | 5 | 0 | 0 | ||||||
Saga | SAGA | 1FM03 | 2NV03 | 3 | 3 | 0 | |||||
Skyndihjálp | SKYN | 2EÁ01 | 0 | 1 | 0 | ||||||
Sköpun | SKÖP | 2SL05 | 0 | 5 | 0 | ||||||
Stærðfræði | STÆR | 2RM05 | 2FJ05/2MM05 | 2CT05 | 0 | 15 | 0 | ||||
Upplýsingatækni | UPPT | 2UT05 | 0 | 5 | 0 | ||||||
Fj. ein. | 140 | 24 | 83 | 33 |
Aðrir óskilgreindir áfangar sem nemendur geta valið/metið á námsbrautinni
Lýsing: Nemendur velja 20 einingar úr áfangasafni skólans. Hafa þarf í huga við allt val að einingar á fyrsta þrepi geta verið 66 að hámarki, annars þreps einingar 100 að hámarki og það þurfa að vera að lágmarki 34 einingar á þriðja þrepi. Mikilvægt er að nemendur dýpki sig í ákveðnum greinum til að vera betur í stakk búnir að takast á við frekara nám og mæta aðgangsviðmiðum þeirrar námsleiðar sem þeir stefna á í háskóla.