Fjölbrautaskólinn í Breiðholti hefur sett sér jafnréttis- og jafnlaunastefnu sem unnin er í samræmi við lög nr. 150/2020 um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna sem og önnur lög sem taka til jafnréttis allra á vinnumarkaði.
Markmið stefnunnar er að koma á og viðhalda jafnrétti og jöfnum tækifærum kvenna og karla og jafna þannig stöðu kynjanna hjá skólanum.
Jafnlaunastefna þessi tekur til allra starfsmanna Fjölbrautaskólans í Breiðholti og kveður á um markmið og aðgerðir til að tryggja starfsfólki FB þau réttindi sem kveðið er á um í 6. gr. laga um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna nr. 150/2020: „Konum, körlum og fólki með hlutlausa skráningu kyns í þjóðskrá skulu greidd jöfn laun og njóta sömu kjara fyrir sömu eða jafn verðmæt störf. Með jöfnum launum er átt við að laun skulu ákveðin á sama hátt fyrir fólk óháð kyni. Skulu þau viðmið sem lögð eru til grundvallar launaákvörðun ekki fela í sér kynjamismunun. Starfsfólki skal ávallt heimilt að skýra frá launakjörum sínum ef það kýs að gera svo.“
Í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti eru greidd laun eftir umfangi og eðli starfa og tekið er mið af þeim kröfum sem störf gera um þekkingu, hæfni og ábyrgð. Forsendur launaákvarðana eru að þær séu í samræmi við kjara- og stofnanasamninga og launastefnu skólans, studdar með rökum og tryggi að sömu laun séu greidd fyrir sambærileg eða jafnverðmæt störf.
Til að framfylgja lögum um launajafnrétti mun FB:
Skólameistari ber ábyrgð á jafnlaunakerfinu og að það sé í samræmi við lög nr. 150/2020 um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna. Stjórnendur bera ábyrgð á innleiðingu og viðhaldi kerfisins í samræmi við jafnlaunastaðalinn. Yfirstjórn ber ábyrgð á að rýna skýrslur um jafnlaunakerfi, gæði þess og skilvirkni sem og að mæla fyrir um tillögu um úrbætur.
Stjórnendur skuldbinda sig til að viðhalda stöðugum umbótum, eftirliti og bregðast við óútskýrðum launamun og þeim frávikum sem koma fram við rýni á jafnlaunakerfinu.
Samþykkt af yfirstjórn FB 15. október 2020 og uppfærð á yfirstjórnarfundi 16. október 2023.